Reykjavík Winner hundasýning HRFÍ, 25. – 26. maí 2013

Sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 25. – 26. maí 2013 í Reykjavík.

Þeir hundar sem verða besti hundur tegundar (BOB) eða annar besti hundur tegundar (BOS) í sinni tegund á þessari sýningu fá titilinn RW-13 skráð fyrir framan nafn hundsins í ættbók og geta jafnframt fengið viðurkenningaskjal þess efnis keypt eftir sýninguna.

Dómarar að þessu sinni eru:  Paul Jentgen (Lúxemborg), Lena Stålhandske (Svíþjóð), Jörgen Hindse (Danmörk), Bo Skalin (Svíþjóð), Per Kr. Andersen (Noregi) ofl.

Sýningarþjálfun Unglingadeildar fyrir maí sýningu HRFÍ verða í Klettagörðum 6.

  • 12. maí kl. 14-15
  • 19. maí kl. 14-15

Skiptið kostar 500 kr.

Febrúarsýning HRFÍ 23.-24. febrúar 2013

Hundaræktarfélag Íslands verður með alþjóðlega hundasýningu helgina 23.-24. febrúar 2013. Síðasti skráningardagur á sýninguna er 25. janúar í gegnum skrifstofu Hrfí.

Búið er að tilkynna hvaða dómarar dæma Terrier og er það Hanne Laine Jensen, Border terrier ræktandi frá Danmörku. (Birt með fyrirvara um breytingar.)

Hvetum við sem flesta til að skrá hundana sína á sýninguna og hafa gaman af.

Sýningarþjálfanir Unglingadeildar verða í Gæludýr.is, Korputorgi:
3. febrúar, kl. 14.00
10. febrúar kl. 14.00
17. febrúar kl. 14.00

 

Úrslit nóvembersýningar 2012

Úrslit í tegundahópi 3 (Terrier) á nóvembersýningu HRFÍ 2012:

1. sæti í tegundarhópi og 4. sæti í besti hundur sýningar
ISCh Hekla IS14672/10
Border terrier
Eigandi: Hlín Júlíusdóttir
Ræktandi: Sigríður Eiríksdóttir

2. sæti
ISCh Paradise Passion Þula IS11871/08
Silky terrier
Eigandi: Rhonica Reynisson
Ræktandi: Elísabet Kristjánsdóttir

3. sæti
ISCh Caroli Corona Diamonds In The Sky IS13577/09
Yorkshire terrier
Eigandi: Sigrún Gréta Einarsdóttir & Þórainn Pálsson
Ræktandi: Carin Hillman

Næsta sýning í ágúst

Minnum á að næsta alþjóðlega hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin á höfuðborgarsvæðinu helgina 25. – 26. ágúst 2012.

Skráningarfrestur er til 27. júlí en sumarlokun skrifstofu HRFÍ verður 18. júní til 16. júlí.

Dómarar að þessu sinni verða: Rita Reyniers (Belgía), Theo Leenen (Belgíu), Harry Tast (Finnland), Stefan Sinko (Slóvenía), Olga Sinko (Slóvenía), Colette Muldoon (Írland).

Nánar á vef HRFÍ www.hrfi.is

Úrslit hundasýningar HRFÍ 2.-3. júní 2012

Að þessu sinni lenti Terrier í öðru sæti í vali á besta hundi sýningar en það var Rosetopps Icran sem er Yorkshire terrier. Óskum við eigendum og ræktendum til hamingju með þennan frábæra árangur.

Úrslit í tegundahópi 3 voru eftirfarandi:

1. sæti
Rosetopps Icran IS14803/10
Yorkshire terrier
Eigandi: Sigrún Gréta Einarsdóttir & Þórarinn Pálsson
Ræktandi: Klara Guðrún Hafsteinsdóttir

2. sæti
Hekla IS14672/10
Border terrier
Eigandi: Hlín Júlíusdóttir
Ræktandi: Sigríður Eiríksdóttir

3. sæti
Paradis Passion Special Bósi IS15740/11
Silky terrier
Eigandi: Eiríkur Ásmundsson
Ræktandi: Elísabet Kristjánsdóttir & Jónína Guðný Elísabetardóttir

4. sæti
Forevercairn Kosmo IS12371/08
Cairn terrier
Eigandi: Anna Kristín Einarsdóttir & Guðmundur Helgi Guðmundsson
Ræktandi: Kristín Sveinsdóttir

 

Hundasýning 2. og 3. júní nk.

Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands helgina 2.- 3. júní verður haldin á Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík. Nýja sýningasvæðið er allt opið, sölu- og kynningabásar eru inni á sjálfu sýningasvæðinu ásamt sýnendum og áhorfendum. Áhorfendum er leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi. Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.

Alls verða sýndir 689 hreinræktaðir hundar af 75 hundategundum og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi.

Fimm dómarar frá fjórum löndum; Bretlandi, Belgíu, Danmörku og Írlandi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis.

Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.

Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 27 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, laugardaginn 2. júní kl.13:00.

Úrslit á báða daga hefjast um kl. 14:00 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara.

 

Fyrirlestur Turid Rugaas nk. sunnudag, 20.maí

Kæru viðtakendur.

Mig langar hér með, að gefnu tilefni, að minna ykkur á fyrirlestur Turid Rugaas nk. sunnudag, 20.maí

Mér til ánægju er sífellt verið að minna mig á og staðfesta það sem ég taldi mig vita, að fyrirlestrar Turid séu afskaplega uppbyggilegir, lærdómsríkir, hún sé skemmtilegur fyrirlesari og eigi auðvelt með að koma þekkingu sinni til skila á áhugaverðan hátt.

Ef einhver ykkar hafa áhuga á að ræða við Turid um að hún komi fljótlega aftur og haldi hér námskeið, setjið ykkur strax í beint samband við hana í netf.: turidrug@frisurf.no
Upphaflega ástæðan fyrir komu hennar núna er sú að einhverjir höfðu samband við hana með ósk um að hún héldi hér námskeið og það vill hún ræða beint við áhugasama.

Og mig langar að biðja ykkur að segja sem flestum frá þessu tækifæri á að fræðast um samskipti okkar við hunda.

Að lokum eru hér aftur upplýsingar um fyrirlesturinn:

Dagur: sunnud. 20.maí
Efni: „Understanding your dog“ kl. 13 – 16
„A healthy life for your dog“ kl. 17 – 20
Staður: Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarði 8 (við hlið Kaffivagnsins) – salur Hornsílið.
Tími: kl. 13 – 20 (með hléi frá kl. 16 – 17)
Gjald: kr. 9000,-
Bókun og uppl.: netf.: turid.island@gmail.com eða síma: 899 5890
Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á hundum og velferð þeirra.
Vinsamlega bókið fyrirfram.

Með kveðju
Halldóra Kristjánsdóttir